5 September 2012 12:00

Göngum í skólann var sett í dag miðvikudaginn 5. september í Kelduskóla í Grafarvogi

Við opnunina sagði Ólafur Rafnsson forseti ÍSÍ frá verkefninu og kynnti bakhjarla þess. Þeir sem standa að verkefninu eru Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, mennta- og menningarmálaráðuneytið, embætti Landlæknis, Ríkislögreglustjóri, Slysavarnafélagið Landsbjörg, Umferðastofa og Landssamtökin Heimili og skóli.

Árný Inga Pálsdóttir skólastjóri Kelduskóla sagði frá því hvernig nemendur og kennarar í Kelduskóla hafa tekið þátt í ýmsum hvatningarverkefnum. Meðal annars sýndi hún  gullskóinn sem nemendur keppast um að vinna með því að vera duglegir að ferðast fyrir eigin afli í og úr skóla. Það var svo velferðarráðherra Guðbjartur Hannesson sem setti verkefnið formlega. Við setninguna spilaði hljómsveitin vinsæla Moses Hightower lög sín ,,Sjáum hvað setur” og ,,Stutt skref” sem bæði hafa náð efsta sæti á vinsældalista Rásar 2 í sumar.

Í ár tekur Ísland þátt í sjötta skipti í alþjóðlega verkefninu Göngum í skólann. Verkefnið hófst í Bretlandi árið 2000 og hefur þátttaka stöðugt farið vaxandi. Hér á landi fer skráning skóla mjög vel af stað, enn geta skólar bæst í hópinn. Á alþjóðavísu er Göngum í skólann mánuðurinn í október og Alþjóðlegi Göngum í skólann dagurinn er 3. október. Vegna birtu og veðuraðstæðna fer Göngum í skólann verkefnið fram hér á Íslandi í septembermánuði og því lýkur á Alþjóðlega Göngum í skólann deginum þann 3. október n.k.

Meginmarkmið Göngum í skólann eru að hvetja nemendur og foreldra á Íslandi til að ganga, hjóla eða fara á annan virkan hátt til og frá skóla. Um leið er ætlunin að: Hvetja til aukinnar hreyfingar með því að auka færni barna til að ganga á öruggan hátt í skólann og fræða þau um ávinning reglulegrar hreyfingar. Kenna reglur um öryggi á göngu og á hjóli. Draga úr umferð við skóla: Draga úr umferðarþunga, mengun og hraðakstri nálægt skólum. Betra og hreinna loft ásamt öruggari og friðsælli götum og hverfi. Stuðla að vitundarvakningu um ferðamáta og umhverfismál: Hversu ,,gönguvænt“ umhverfið er og hvar úrbóta er þörf. Samfélagsvitund eykst. Hvetja til heilbrigðs lífsstíls fyrir alla fjölskylduna: Hreyfing vinnur gegn hjartasjúkdómum, offitu og sykursýki II og stuðlar að streitulosun, betri sjálfsmynd, o.fl.

Nánari upplýsingar um verkefnið gefur Örvar Ólafsson verkefnastjóra hjá Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands í s. 514-4000 eða með tölvupósti orvar@isi.is. Heimasíða verkefnisins er  www.gongumiskolann.is.