11 Ágúst 2022 12:54

(English Below)

Eldgosasvæðið í Meradölum er opið.   Vinsamlega kynnið ykkur leiðbeiningar á safetravel.is á slóðinni:  https://safetravel.is/uncategorized-is/upplysingasida-vegna-eldsumbrota-a-reykjanesi?lang=is

Spá veðurvaktar um gasdreifingu

Suðvestan 5-10 m/s og stöku skúrir á gosstöðvunum í dag. Gasmengun berst til norðausturs í átt að höfuðborgarsvæðinu.
Suðaustan 8-15 um tíma í kvöld með rigningu og þá gæti einnig orðið vart við gasmengun á Vatnsleysuströnd.
Suðvestan og vestan 3-8 m/s á morgun og smá skúrir. Gasmengun berst til austurs og norðausturs og gæti orðið vart í Ölfusi og á höfuðborgarsvæðinu.

Mikilvæg skilaboð frá Veðurstofu fyrir þá sem ætla að fara að gosstöðvunum

  • Gasmengun við gosstöðvarnar getur alltaf farið yfir hættumörk, mengunin leggst undan vindi og því öruggast að horfa til eldgossins með vindinn í bakið.
  • Í hægviðri (<5 m/s) getur gas safnast fyrir í lægðum, þá stjórnast vindafar af landslagi og gas getur verið yfir hættumörkum langt upp í hlíðar, allan hringinn í kringum gosstöðvarnar. Í slíkum tilfellum þurfa áhorfendur að færa sig upp á fjöll og hryggi en ekki halda sig í brekkunum fyrir ofan.

Foreldrum með börn yngri en 12 ára verður snúið frá leið A af öryggisástæðum að svo stöddu.  Áætla má að ferðalagið taki að lágmarki 5 til 6 klukkustundir.  Gætt getur gasmengunar á gönguslóð og þá sérstaklega í nálægð við gosið.  Börn hafa minna þol gagnvart loftmengun og eru skilgreind sem viðkvæmur hópur.  Þá er ekki ráðlegt að börn dvelji lengur en 15 mínútur á stað þar sem loftmengun er yfir heilsuverndarmörkum, sjá upplýsingar á heimasíðu embættis landlæknis.

Börnum yngri en 12 ára er ekki hleypt að gosinu sjálfu og fylgjast viðbragðsaðilar með umferð við upphaf gönguleiðar A að gosinu.  Göngumenn fari gætilega og haldi sig fjarri hraunjaðri.  Þá er vakin athygli á því að enn er unnið að lagfæringum á þessari leið.

The Meradalir eruption site is now open. Please familiarize yourselves with the guidelines available on safetravel.is through the following link: https://safetravel.is/uncategorized-is/upplysingasida-vegna-eldsumbrota-a-reykjanesi?lang=is

Weather reports concerning volcanic air pollution

Southwesterly winds 5-10 m/s with occasional rain over the eruption area today. Air pollution will be traveling in a northeasterly direction towards the Greater Reykjavík Capital Region.
Southeasterly winds 8-15 m/s with rains for a spell this evening, by which time some air pollution might be detected in Vatnsleysuströnd.
Southwesterly and westerly winds 3-8 m/s tomorrow with occasional rains. Air pollution will travel in an easterly and northeasterly direction and might be detected in Ölfus and in the Capital Region.

Important message from the Icelandic Meteorological Office for anyone intending to visit the eruption site

  • Air pollution on the eruption site can reach dangerous levels at any given time. Noxious gasses are carried by by winds and so it safest to observe the eruption site with the wind at your back.
  • During calm weather (<5 m/s), noxious gasses can settle in low areas. Furthermore, winds are affected by the landscape, so pollution level may reach toxic levels on the slopes all around the eruption site. In such instances, visitors must move to nearby mountains and ridges and not remain on the slopes surrounding the eruption.

For the time being, parents on hiking trail A who are travelling with children under the age of 12 will be turned around due to safety concerns. Prepare for the journey to the eruption site to take at least 5-6 hours. Air pollution may be present on the hiking trail, especially near the eruption. Children have a lower tolerance for air pollution and are designated as at-risk individuals. It is not recommended that children stay for longer than 15 minutes in areas where air pollution levels are above acceptable standards. For more information, see the Icelandic Directorate of Health’s website.

Children under the age of 12 will not be admitted to the eruption site. Rescue and response units will be monitoring the traffic traveling towards the eruption site from the starting point of hiking trail A. Hikers should take care and keep a safe distance from the edges of the new lava field. Please note that the hiking trail is still in the process of being developed and improved.