22 Apríl 2013 12:00

Lögreglan á Selfossi fékk tilkynningu um þjófnað úr verslun á Geysi um kl. 17:00 í gær.  Á þeim tíma var ekki tiltækur mannskapur hjá Lögreglunni á Selfossi til að sinna verkefninu en lögreglumenn frá Sérsveit ríkislögreglustjóra fóru á vettvang og handtóku manninn og færðu í fangahús á Selfossi.  Hann hafði stolið fatnaði að verðmæti um 400 þúsundum króna.   Við athugun kom í ljós að hann var á reynslulausn vegna fyrri þjófnaðarbrota.   Hann var færður fyrir dómara í morgun sem úrskurðaði um að hann skyldi afplána eftirstöðvar fangelsisrefsingarinnar,  180 daga og hefur hann nú verið fluttur til afplánunar, innan við sólarhring frá því að lögreglu barst tilkynning um brotið.