7 Janúar 2004 12:00

Þann 6. janúar hófu 40 nýnemar nám á fyrstu önn grunndeildar Lögregluskóla ríkisins. Námið á önninni tekur rúmlega 4 mánuði og í maí fara nemendurnir í starfsþjálfun hjá lögregluembætti á höfuðborgarsvæðinu.

Af þessum 40 nýnemum hafa 30 starfað sem afleysingamenn í lögreglunni, allt frá þremur mánuðum til rúmlega þriggja ára.

25 af nýnemunum hafa lokið stúdentsprófi og 7 þeirra eru með háskólapróf. Í hópnum eru m.a. tölvu- og upplýsingafræðingur, sálfræðingur, húsasmiður, íþróttakennari, kennari, lögfræðingur og stjórnmálafræðingur.

Menntun nýnema er alltaf að aukast og undanfarin tvö ár hefur meðalaldur þeirra einnig hækkað nokkuð. Að þessu sinni er meðalaldur nýnema um 26 ár.

9 konur eru í hópi nýnemanna eða 22,5%.