2 Maí 2007 12:00

Gunnlaugur K. Jónsson hefur verið skipaður aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Gunnlaugur, sem hóf störf í lögreglunni í Reykjavík 1977, útskrifaðist frá Lögregluskóla ríkisins 1979 en eftir námið var hann í umferðardeild og almennri deild. Gunnlaugur starfaði síðan í öllum rannsóknardeildum LR á árunum 1981-1999 og var einnig um tíma hjá Rannsóknarlögreglu ríkisins. Hann var skipaður rannsóknarlögreglumaður 1986 og lögreglufulltrúi 1997. Gunnlaugur varð forstöðumaður innra eftirlits LR 1999 og gegndi starfinu til síðustu áramóta. Hann er nú annar tveggja starfsmanna innri endurskoðunar LRH.

Gunnlaugur hefur sótt fjölmörg námskeið og ráðstefnur, heima og erlendis, sem tengjast m.a. innri endurskoðun. Um tíma kenndi hann við Lögregluskóla ríkisins. Gunnlaugur hefur gegnt ýmsum trúnaðarstörfum fyrir lögreglumenn og var nýverið sæmdur heiðursmerki Landssambands lögreglumanna.