7 Október 2021 10:11

Hreyfing mælist enn á flekanum sem liggur hægra megin við Búðará (sunnan megin) í skriðusárinu frá desember 2020. Frá sl. laugardegi hefur hann hreyfst sem nemur rétt um 3,5 cm. Engar aðrar hreyfingar hafa mælst í hlíðinni ofan Seyðisfjarðar og ekki heldur á flekanum við Stöðvarlæk, norðan skriðusársins.

Úrkomulaust er enn á Seyðisfirði en gert ráð fyrir að rigna taki upp úr hádegi í dag og þá talsvert. Hún ætti að ganga að mestu niður í nótt. Ekki er gert ráð fyrir rigningu á morgun, föstudag. Vel er fylgst með öllum mælum í hlíðinni.

Rýming mun vara fram yfir helgi.

Herðubreið verður opin milli klukkan 14 og 16 í dag og alla daga fram yfir helgi á meðan rýming varir. Íbúar í húsum á rýmingarsvæðum eru sérstaklega hvattir til að mæta. Þeir munu þá fá aðstoð við að fara og huga að húsum sínum hafi þeir hug til þess. Fulltrúar Rauða krossins, Múlaþings og lögreglu verða í Herðubreið. Allir velkomnir.

Minnt er á hjálparsíma Rauða krossins í síma 1717.

Á bloggsíðu Veðurstofu Íslands er hægt að skoða staðsetningu flekans meðal annars og hreyfingar á speglum, auk þess sem þar má fá ítarlegri upplýsingar um stöðu mála (https://blog.vedur.is/ofanflod).

Einnig er á Veðurstofu Íslands tilkynningarborði þar sem hægt er að nálgast upplýsingar um vöktun og fleira („Viðvörun Hættustig Almannavarna á Seyðisfirði, vegna hættu á skriðuföllum).