5 Október 2021 12:04

Enn mælist hreyfing á flekanum sem liggur milli skriðusársins frá desember 2020 og Búðarár. Talsverðri úrkomu er spáð á svæðinu þegar nær dregur helgi.

Rýming mun því vara fram yfir helgi.

Níu hús voru rýmd í gær vegna þessa og nítján manns yfirgáfu þá heimili sín. Rýming gekk vel og allir fengu húsaskjól.

Herðubreið verður opin milli klukkan 14 og 17 í dag. Íbúar í húsum á rýmingarsvæðum eru sérstaklega hvattir til að mæta og geta þá fengið aðstoð við að fara að og huga að húsum sínum hafi þeir hug til þess.

Fulltrúar Rauða krossins verða í Herðubreið, Múlaþings og lögreglu. Allir velkomnir.

Minnt er á hjálparsíma Rauða krosssins í síma 1717.