4 Október 2021 17:39

Ríkislögreglustjóri í samráði við Lögreglustjórann á Austurlandi hefur ákveðið að lýsa yfir hættustigi almannavarna á Seyðisfirði vegna hættu á skriðuföllum.  Frá því í gær hafa mælst hreyfingar á fleka sem liggur milli skriðusársins frá 2020 og Búðarár.  Auk þess er spáð úrkomu á svæðinu þegar nær dregur helgi.  Utan þess svæðis hafa hreyfingar ekki mælst.

Í ljósi þessara upplýsinga verða eftirtalin hús rýmd:

Við Fossgötu 4, 5, 7

Við Hafnargötu 10,12, 14, 16b, 18c og 25

Þá er umferð um göngustíg meðfram Búðará bönnuð á meðan hættustig er í gildi.

Gert er ráð fyrir að rýming vari fram yfir helgi í ljósi úrkomu sem spáð er á svæðinu. Þá verður staðan metin að nýju. Verið er að opna fjöldahjálparstöð í Herðubreið þangað sem allir eru velkomnir. Hún mun opin fram eftir kvöldi.  Einnig er velkomið hafa samband við 1717 hjálparsíma Rauða krossins eða netspjallið.

Fréttatilkynning verður næst send fyrir hádegi á morgun, þriðjudag.