18 Desember 2020 11:02

Mikil úrkoma var á Seyðisfirði í gærkvöldi og í nótt og rýmingar því enn í gildi. Í gærkvöldi voru svæði stækkuð þar sem fólk í húsum var beðið um að gæta varúðar. Í nótt féllu tvær skriður úr Nautaklauf þar sem stærsta skriðan á þriðjudag féll.

Fyrri skriðan féll upp úr kl. 1 og önnur stærri skriða féll um tveimur tímum seinna. Sú skriða tók með sér mannlaust timburhús og flutti um 50 m. Það hús var innan svæðis sem hafði verið rýmt. Í kjölfarið var staðan endurmetin og nokkur hús til viðbótar rýmd.

Rýmingar á Seyðisfirði verða áfram í gildi að minnsta kosti þar til á morgun. Gerð hefur verið áætlun um frekari rýmingar og útvíkkun á hættusvæði ef aðstæður versna.

Þá féll skriða á Eskifirði, utan þéttbýlis, en ekki er talin ástæða til frekari viðbragða þar að sinni. Áfram er vel er fylgst með aðstæðum.

Ekki er heimilt að fara inn á rýmingarsvæðið á Seyðisfirði eins og sakir standa, en staðan verður endurmetin eftir birtingu.

Appelsínugul úrkomuviðvörun Veðurstofu Íslands fyrir Austurland hefur verið framlengd til klukkan 20:00 í kvöld og þá tekur við gul viðvörun til klukkan 09:00 á laugardagsmorgun.