6 Júní 2005 12:00

Í  nótt sem leið lagði Lögreglan á Patreksfiðri hald á fíkniefni hjá aðila sem grunaður var um fíniefnamisferli.  Umræddur aðili var handtekinn ekki langt frá Félagsheimilinu á Patreksfirði þar sem mjög fjölmennur Sjómannadagsdansleikur stóð yfir.  Við leit á manninum fundust 10 ætlaðar E-töflur og 6,5 gr. af hvítu efni, ætlað kokain og amfetamin.  Manninum hefur verið sleppt lausum og má hann búast við refsingu.  Við mál þetta naut lögreglan aðstoðar lögreglunnar á Ísafirði, en sérstak fíkniefnaeftirlit var í umdæmi lögreglunar á Patreksfirði síðustu fjóra daga.