8 Janúar 2009 12:00

Lögreglan á Vestfjörðum lagði hald á mun meira magn fíkniefna á nýliðnu ári samanborið við s.l. fimm ár.  Eins og meðfylgjandi tafla sýnir lagði  lögreglan hald á rúmlega 800 grömm af fíkniefnum, en þar var aðallega um að ræða kannabisefni. Einnig var lagt hald á E-töflur (Ecstasy), amfetamín og lítilræði af kókaíni og ofskynjunarefnum.  Þess ber að geta að hér eru ekki taldar með haldlagningar lyfja svo sem stera og þ.h. 

Til samanburðar hafa haldlagningar í umdæminu s.l. fimm ár numið um 220 grömmum að meðaltali á ári.   

Lögreglan á Vestfjörðum hvetur almenning til að vera vel á varðbergi og veita lögreglunni allar upplýsingar um fíkniefnameðhöndlun, því ekkert verður gefið eftir gagnvart fíkniefnadreifingu  í umdæminu. Þeir sem hafa slíkar  upplýsingar eru beðnir um að hafa samband í síma lögreglunnar á Vestfjörðum  sem er 450 3730 eða símsvara lögreglunnar og tollgæslunnar á  landsvísu 800 5005. Nafnleynd er heitið.