23 Október 2011 12:00

Yfirheyrslum yfir manni sem handtekinn var í Þorlákshöfn í nótt er lokið og telst málið upplýst.   Ekkert bendir til þess að hann hafi beint vopnum sínum gegn öðru fólki.  Maðurinn er laus úr höndum lögreglu en nýtur handleiðslu lækna áfram.