8 Apríl 2008 12:00

Síðdegis í gær voru þrír ungir menn handteknir í tengslum við líkamsárás á ungan dreng á hjólabrettasvæði á Selfossi á sunnudagskvöld.  Við rannsókn málsins kom fram að kúbeini var beitt í árásinni.  Yfirheyrslur stóðu yfir fram yfir miðnætti.  Tveir voru látnir lausir í gær en framburður þess þriðja var óljós og verður hann yfirheyrður öðru sinni nú fyrir hádegi. Eftir er að yfirheyra nokkur vitni sem gert verður í vikunni.  Það liggur fyrir að tveir drengjanna, 17 og 18 ára, stóðu að árásinni og stúlka og drengur áttu hlutdeild í henni.  Kúbeinið er í vörslu lögreglunnar og rannsóknin á lokastigi.  Sá sem fyrir árásinni varð, eins og áður er fram komið, er óbrotinn en með bólgur í andliti eftir hnefahögginn og aumur í baki eftir kúbeinið.