13 Desember 2017 21:26

157 mál eru skráð hjá lögreglunni á Austurlandi á þessu tímabili. Nokkrir ökumenn voru aðstoðaðir á Fjarðarheiði vegna óveðurs. Útafakstur varð á Norðausturvegi rétt ofan við Brunahvamm. Bifreiðin skemmdist talsvert en engin slys urðu á fólki. Þá fór bifreið út af hringveginum á móts við Dalsá í Fáskrúðsfirði. Ökumaður bifreiðarinnar kvaðst hafa séð kyrrstæða ljóslausa bifreið á veginum framundan og sveigði framhjá til að forðast árekstur með framangreindum afleiðingum.  Nokkrir vegfarendur voru aðstoðaðir vegna óveðurs víðar í umdæminu. Nokkur önnur umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglu en sem betur fer engin slys á fólki.

Einn ökumaður var handtekinn á Fáskrúðsfirði grunaður um að aka bifreið undir áhrifum fíkniefna, jafnframt er viðkomandi sviptur ökuréttindum. Annar ökumaður er grunaður um nytjastuld ökutækis og að hafa ekið bifreið sviptur ökuréttindum á Breiðdalsvík.  Þá var ökumaður handtekinn á Egilsstöðum vegna gruns um akstur bifreiðar undir áhrifum fíkniefna.

Ein líkamsárás var tilkynnt lögreglu á Egilsstöðum og er til rannsóknar.

Lögreglan varar vegfarendur sérstaklega við slæmum aðstæðum á nýja veginum frá gangnamuna í Fannardal að Skálateigi, djúpar holur eru í víða veginum sem geta valdið eignatjóni og umferðaróhöppum.