14 Apríl 2015 11:30

Vikan var með rólegra móti hjá lögreglu og engin alvarleg mál sem upp komu.  Helgin fór ágætlega fram og rólegt í kringum skemmtistaði bæjarins.  Lögreglan þurfti lítið sem ekkert að hafa afskipti af gestum öldurhúsanna og fór skemmtanahaldið fram með ágætum.

Sjö kærur liggja fyrir vegna brota á umferðarlögum eftir liðna viku og var í öllum tilvikum um að ræða ólöglega lagningu ökutækja.