15 Júní 2015 15:49

Það var í ýmsu að snúast hjá lögreglu í liðinni viku enda töluverður fjöldi fólks í bænum í tegnslum við TM-pæjumót ÍBV.   Helgin fór ágætlega fram en nokkuð var þó um ölvun og þurfti lögreglan að aðstoða fólk af þeim sökum.

Einn þjófnaður var tilkynntur lögreglu í liðinni viku en um var að ræða þjófnað úr geymsluskáp í kjallara Golfskálans en þarna hafði skápurinn verið spenntur upp og þaðan stolið tveimur kössum af Titleist pro v1 golfboltum alls 24 boltum.  Talið er að þjófnaðurinn hafi átt sér stað á milli kl. 17:00 og 20:00 laugardaginn 13. júní sl.  Þeir sem einhverjar upplýsingar hafa um hver þarna var að verki er vinsamlegast beðin um að hafa samband við lögreglu.

Alls liggja níu kærur fyrir vegna brota á umferðarlögum en m.a. er um að ræða ólöglega lagningu ökutækja, vanrækslu á að greiða lögboðnar tryggingar, vanrækslu á að nota öryggisbelti í akstri og stöðvunarskylda ekki virt.