7 September 2015 16:51

Vikan var með rólegra móti hjá lögreglu þrátt fyrir að nokkur fjöldi fólks hafi verið hér í Eyjum um helgina, bæði í tengslum við Vestmanneyjahlaupið og ein þrjú árgangsmót sem haldin voru.   Engin teljanleg útköll voru á öldurhúsin og fór skemmtanahald helgarinnar að mestu fram með ágætum.

Ein kæra liggur fyrir vegna brota á lögreglusamþykkt en þarna hafði manni orðið mál og kastaði af sér vatni á útidyrahurð.  Var honum sagt að láta af þessum ósóma og gerð grein fyrir að hann fengi sekt vegna athæfisins.

Við eftirlit lögreglu á einu af öldurhúsum bæjarins urðu lögreglumenn varir við að þar inni var ungmenni undir 18 ára aldri og var ungmenninu í framhaldinu vísað út af staðnum.  Forsvarsmaður veitingastaðarins á hins vegar von á kæru vegna þessa.

Tvö umferðaróhöpp voru tilkynnt lögreglu í vikunni en í báðum tilvikum var um minniháttar óhöpp að ræða og engin slys á fólki.

Ein kæra liggur fyrir vegna brota á umferðarlögum en um er að ræða brot á biðskyldu sem olli minniháttar umferðaróhappi.