2 Nóvember 2015 15:34

Vikan var með rólegra móti hjá lögreglu fyrir utan hin hefðbundun verkefni sem felast m.a. í því að aðstoða borgarana eftir fremsta megni.   Skemmtanahald helgarinnar fór ágætlega fram en eitthvað var þó um útköll á öldurhúsin vegna fólks sem annaðhvort var til vandræða eða vegna annarra atvika, sem ekki er ástæða til að tíunda hér.

Um liðna helgi var tilkynnt um þjófnað á afturstuðara af Subaru Impreza, stuðarinn var reyndar ekki á bifreiðinni þegar honum var stolið.   Talið er að þjófnaðurinn hafi átt sér stað sl. föstudag eða laugardag þar sem stuðarinn var við Vestmannabraut 57.

Að kvöldi sl. föstudags urðu lögreglumenn í eftirliti varir við að aðili var að bera út poka af einum af öldurhúsum bæjarins.  Við nánari athugun reyndist áfengi vera í pokanum sem aðilinn kvaðst hafa keypt inni á veitingastaðnum.  Má vert staðarins búast við sekt vegna atviksins.

Lögreglan vill minna gangandi vegfarendur á endurskinsmerkin og þá sérstaklega foreldra og forráðamenn barna á að láta börn sín vera með endurskinsmerki, núna þegar svartasta skammdegið fer í hönd.