10 Febrúar 2015 15:15

Lögreglan í Vestmannaeyjum hafði í ýmsu að snúast í liðinni viku án þess þó að upp hafi komið alvarleg mál.  Helgin fór fram með ágætum og frekar rólegt var á öldurhúsum bæjarins.  Að vanda þurftu einhverjir aðstoð lögreglu vegna hinna ýmsu atvika sem upp komu.

Þrjú fíkniefnamál komu til kasta lögreglu um liðna helgi en um var að ræða ætluð fíkniefni sem fundust við eftirlit lögreglu með fíkniefnaleitarhundinum Lunu á einum af veitingastöðum bæjarins.  Efni þessi fundust á gólfi og fyrir utan veitingastaðinn og er líklegt að þeir sem voru með þessi efni í sínum fórum hafi hent þeim frá sér þegar þeir urðu varir við lögreglu.

Alls liggja 9 kærur fyrir vegna brota á umferðarlögum eftir liðna viku, 6 af þeim eru vegna vanrækslu á að nota öryggisbelti við aksturinn, ein vegna aksturs sviptur ökuréttindum, ein vegna ólöglegrar lagningar ökutækis og ein vegna vanrækslu á að greiða vátryggingar ökutækis, auk þess sem skráningarnúmer ökutækisins var fjarlægt af því.