15 Febrúar 2016 15:49

Liðin vika var með rólegra móti hjá lögreglu og engin alvarleg mál sem upp komu. Skemmtanahald helgarinnar fór fram með ágætum og engin teljandi útköll vegna ölvunar.

 

Eitt fíkniefnamál kom upp í liðinni viku en við leit lögreglu hjá karlmanni um þrítugt fannst lítisháttar af kannabisefnum. Málið telst upplýst.

 

Fjórar kærur liggja fyrir vegna brota á umferðarlögum eftir liðna viku en um er að ræða þrjár kærur vegna vanrækslu á að nota öryggisbelti í akstri og eina kæru vegna áreksturs þar sem sá er tjóninu olli stakk af án þess að tilkynna um óhappið. Atvikið mun hafa átt sér stað fyrir utan Strandveg 39 um hádegið þann 9. febrúar sl.  Þeir sem einhverjar upplýsingar hafa um hver þarna var að verki eru vinsamlegast beðinn um að hafa samband við lögreglu.

 

Þrjú umferðaróhöpp voru tilkynnt lögreglu í vikunni en engin alvarleg slys urðu í þessum óhöppum og lítið tjón á ökutækjum.

 

Þann 9. febrúar sl. var lögreglu tilkynnt um slys um borð í Jóni Vídalín VE en þarna hafði skipverji slasast á fæti þegar togvír slóst í hægri fót hans. Skipverjinn var fluttur á heilbrigðisstofnun Suðurlands í Vestmannaeyjum.  Ekki liggur fyrir hversu alvarlegur áverkinn var.