31 Júlí 2022 09:57

Mikill fjöldi fólks var saman kominn á þjóðhátíð í Herjólfsdal í gærkvöldi og nótt og talsverður erill hjá lögreglu fram undir morgun. Sjö líkamsárásarmál eru skráð hjá lögreglu eftir nóttina en í öllum tilfellum var um minniháttar líkamsáverka að ræða. Alls  voru sjö vistaðir í fangageymslu, fjórir vegna ölvunarástands og þrír í tengslum við rannsókn líkamsárásarmála. Þá voru sjö minniháttar fíkniefnamál skráð síðasta sólarhringinn.

Nú í morgunsárið er rólegt yfir bænum og sólin að gægjast í gegnum skýin. Lögregla vill beina því til ökumanna að gæta vel að því að aka ekki af stað fyrr en tryggt er að allt áfengi sé farið úr blóðinu. Lögreglan í Vestmannaeyjum verður með öflugt eftirlit með ástandi ökumanna á götum bæjarins í dag sem og aðra daga.