13 Júlí 2015 13:08

Vikan var með rólegra móti hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum en þó alltaf eitthvað um að vera.

Aðfaranótt sunnudagsins 5. júlí s.l. var brotin afturrúða í bifreið Krónunnar þar sem hún var staðsett á bifreiðastæðinu aftan við verslunina.  Á þessari stundu er ekki vitað hver var þarna að verki.  Þeir sem kunna að búa yfir einhverjum upplýsingum um málið eru vinsamlega beðnir að hafa samband við lögregluna í Vestmannaeyjum.

Einnig voru unnin skemmdarverk á öspum á Bárustíg.  Allar upplýsingar varðandi það eru vel þegnar.

Af umferðinni er það að frétta að einn ökumaður var stöðvaður grunarður um akstur undir áhrifum fíkniefna.  Þá voru 2 ökumenn kærðir fyrir að nota ekki öryggisbelti við aksturinn og 1 fyrir að vera ekki með ökuskírteini meðferðis.

Eitt fíkniefnamál kom upp í vikunni en við leit lögreglu á heimili í bænum fundust ætluð fíkniefni til einkanota.  Málið telst upplýst.