18 Janúar 2016 08:44

Á föstudag var tilkynnt til lögreglu að fólksbifreið hefði verið stolið í Hveragerði fyrr um nóttina. Snemma um morguninn komu tveir menn í bensínstöð í Breiðholti og tóku bensín á bifreiðina.  Þeir fóru inn í bensínstöðina og ætluðu að kaupa vörur en árvökull starfsmaður sá að ekki var allt með felldu og tók kortið.  Síðar um daginn stöðvuðu lögreglumenn á höfuðborgarsvæðinu akstur bifreiðarinnar.  Ökumaður reyndist sviptur ökuréttindum og var að auki eftirlýstur af lögreglu. Bifreiðin komst óskemmt í hendur eiganda síns.

Í síðustu viku voru skráð fimm slys, öll í Árnessýslu. Flest þeirra voru vegna hálku.  Lögreglumenn voru kallaðir til vegna fjórtán umferðaróhappa.

Sex ökumenn voru kærðir fyrir hraðakstur, þrír fyrir ölvunarakstur og einn fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna.