21 Desember 2015 08:48

Góð tíð hefur verið hjá lögreglumönnum á Suðrlandi að undanförnu og ekkert stórvægilegt kom uppá.  Skráð umferðaróhöpp voru 14.

Karlmaður í Þorlákshöfn var úrskurðaður, af lögreglustjóra, í nálgunarbann eftir að hafa brotið gegn sambýliskonu sinni.

Ökumaður vörubifreiðar var stöðvaður á Selfossi fyrir helgi vegna gruns um að vera undir áhrifum fíkniefna við aksturinn.  Hald var lagt á smávegis af hvítu dufti sem maðurinn var með á sér.  Duftið verður sent til rannsóknar.

Tveir ökumenn voru kærðir fyrir ölvunarakstur í Rangárþingi.  Annar þeirra hafði ekið útaf Suðurlandsvegi við Hvítanes.  Í hinu tilvikun ók ökumaður útaf Suðurlandsvegi við Eystri Rangá.  Bifreiðin fór á hvolf og þurfti klippubúnað til að ná manninum út úr henni.  Hann var fluttur með sjúkrabifreið á heilsugæslustöðina á Selfossi.  Þar kom í ljós að hann var með minni háttar áverka.