21 September 2015 08:55

Mjög mikið álag hefur verið á lögreglumönnum í Vík, Kirkjubæjarklaustri og í Höfn í liðinni viku vegna alvarlegra slysa.  Hjá lögreglunni á Suðurlandi voru skráð 17 slys og umferðaóhöpp á þessu tímabili.

Tilkynnt var um innbrot í tvo sumarbústaði í Úthlíð.   Skemmdir voru unnar á húsunum við það að brjótast inn í þau.  Í öðru húsinu var talsvert blóð svo leiða má líkur að því að innbrotsþjófurinn hafi skaðað sig.  Einskis var saknað úr húsunum.

Maður kom í lögreglustöðina á Selfossi til að kæra mann fyrir að hafa falsað nafn hans á afsal fyrir sölu á bíl.  Málið er í rannsókn.

Ökumaður var kærður fyrir akstur bifreiðar sviptur ökuréttindum.  Sautján ökumenn voru kærðir fyrir hraðakstur.

Eins og áður er komið fram voru fimm erlendir ferðamenn fluttir á slysadeild Landspítalans í Fossvogi eftir bílveltu á Mýrdalssandi síðastliðinn þriðjudag.  Rannsókn leiddi í ljós að af þeim fimm sem voru í bifreiðinni var aðeins bílstjórinn með bílbelti. Þetta var þrátt fyrir að í bifreiðinni voru áberandi bendingar um að á Íslandi er beltaskylda og upplýsingar um ökuhraða og annað sem máli skiptir í umferðinni.  Á leið sinni frá slysstað urðu lögreglumenn vitni að gáleysislegum akstri ökumanns jeppabifreiðar á Sólheimasandi.  Ökumaður tók framúr við vafasamar aðstæður og í eitt skipti mátti litlu muna að hann lenti framan á bifreið sem kom á móti.  Lögreglumennirnir hófu eftirför og stöðvuðu ökumann jeppans.  Í jeppanum voru sex erlendir ferðamenn og enginn þeirra í bílbelti.  Er nema von að illa fari.