26 Október 2015 10:25

Um helgina fór fram flugslysaæfing á Hornafjarðarflugvelli þar sem æfð voru viðbrögð við brotlendingu farþegaflugvélar þar sem gengið var út frá því að 21 maður væri um borð.  Lögreglustjórinn á Suðurlandi kom að þessari æfingu ásamst fleirum viðbragðsaðilum.  Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra setti upp æfinguna, sem tókst vel.

Lögreglumenn á Höfn voru kallaðir út seint á laugardagskvöld á veitingastað vegna manns sem svaf ölvunarsvefni á staðnum.  Þegar hann var vakinn brást hann illa við og veittist að lögreglumönnum.  Honum tókst að slá í andlit eins lögreglumannsins.  Maðurinn var handtekinn og færður í fangageymslu þar sem hann svaf úr sér áfengisáhrifin.

Stúlka fótbrotnaði í síðustu viku er henni skrikaði fótur á blautu grasi við Stafafell í Lóni.  Stúlkan var flutt til aðhlynningar og síðan með flugi til Reykjavíkur þar sem gert var að fótbrotinu.

Á föstudag öklabrotnaði kona við Jökulsárlón þegar hún hnaut um stein.

Bíleigandi á Selfossi kom á lögreglustöðina í vikunni og sagði að skráningarnúmerum hefði verið stolið af bifreið hans.  Skömmu síðar kom hann aftur með þær upplýsingar að hann hefði séð númerin á svartri BMW bifreið á leið norður yfir Ölfusárbrú.  Lögreglumenn hófu þegar leit að bifreiðinni og fundu á Suðurlandsvegi við Kögunarhól.  Kona ók bifreiðinni og var ein á ferð.  Við nánari skoðun reyndist hún undir áhrifum fíkniefna og svipt ökurétti.  Bifreiðinni hafði verið stolið í Reykjavík.  Konan var handtekinn og vistuð í fangaklefa á meðan rannsókn fór fram.  Hún var látin laus að lokinni yfirheyrslu.

Karlmaður var handtekinn á Nesjavöllum grunaður um nytjastuld, akstur bifreiðar undir áhrifum fíkniefna, vörslu fíkniefna og að hafa ætlað að koma sök á annan mann.  Hann var látinn laus að lokinni yfirheyrslu.