11 Apríl 2016 10:43

Til marks um mikið umfang lögreglu á Suðurlandi í liðinni viku voru hátt í 300 skráð verkefni. Fjöldi fólks var á ferð í umdæminu um helgina hvort heldur til fjalla eða á láglendi.

Rétt fyrir klukkan fimm í gærdag barst tilkynning til 112 um bíl sem hafði farið í Holtsós undir Eyjafjöllum. Lögregla og tiltækar bjargir brugðust hratt við.  Björgunarsveitir, kafarar, sjúkralið og þyrla fóru á staðinn þar sem talið var í fyrstu að fjórir hefðu verið í bílnum og eins þeirra saknað.  Fljótlega kom í ljós að bílnum hafði verið ekið út í vatnið til björgunar fjórum mönnum sem lentu í hremmingum á kanóum.  Fjórmenningarnir voru allir í flotvestum og var bjargað í land eftir að hafa verið 40 mínútur í vatninu.  Allir voru nokkuð vel á sig komnir miðað við aðstæður en voru fluttir á sjúkrahús til skoðunnar.  Við getum verið stolt af því hvað við eigum öflugt, ósérhlíft og samstillt fólk í björgunarsveitum, lögreglu, sjúkraliði, slökkviliði, 112 og öllum öðrum ónefndum sem að þessum málum koma.

Síðdegis á laugardag varð vélsleðaslys í Stóra Brandsgili við Landmannalaugar. Vélsleðamaður sem var að aka niður bratt gil lenti utan í kletti.  Talið var að maðurinn hefði hlotið innvortis áverka.  Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð til og flutti manninn á sjúkrahús í Reykjavík.  Vélsleðamaðurinn fór í aðgerð á Landspítalanum og er á batavegi.

Uppúr klukkan 20 á laugardag barst tilkynning um bifreið sem var ekið fram af snjóhengju við Jökulheima. Farþegi í bifreiðinni lenti í framrúðu og fékk auk þess bakhnykk  og hlaut af því miklar kvalir.  Þyrla var ekki tiltæk til að flytja sjúklinginn á sjúkrahús.  Björgunarsveitarmenn á Hellu fóru áleiðis og tóku við sjúklingnum og komu til móts við sjúkraflutningamenn sem fluttu manninn áfram til Reykjavíkur.

Eftir hádegi í gær var kallað eftir slökkviliði og lögreglu vegna sinuelds sem kom upp við sumarbústað í Flóa. Slökkviliðsmenn réðu niðurlögum eldsins.  Tjón varð óverulegt.

Tveir ökumenn voru kærðir fyrir ölvunarakstur, einn fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna og 60 fyrir hraðakstur.