11 Janúar 2016 08:58

Vikan hefur nýst lögreglumönnum vel til að sinna umferðareftirliti og til að yfirfara, hreinsa og laga tæki og búnað auk þess að vinna við frágang mála.

Karlmaður á Höfn var kærður um helgina fyrir að vera með kannabis í vörslum sínum.

Kona úlnliðsbrotnaði á laugardag þegar hún rann til í hálku á göngustíg við gatnamót Eyrarbakka- og Þorlákshafnarvegar. Hún var í hópferð á vegum ferðaskrifstofu þegar það gerðis.   Sjúkraflutningamenn komu á staðinn og fluttu konuna á slysadeild Landspítala.

Í gær, sunnudag, valt bifreið á Grafningsvegi við Torfastaði. Ökumaður og tveir farþegar komust á eigin vegum til læknisskoðunar á Selfossi.  Í ljós kom að meiðsli voru minni háttar.  Vegurinn var flugháll og varasamur til aksturs.

Seint á fimmtudagskvöld var tilkynnt til lögreglu um hross í lausagöngu við Suðurlandsveg á móts við Ölfusborgir. Lögreglumenn fóru strax að sinna verkefninu en skömmu síðar kom tilkynning um að ekið hefði verið á hross á þessum sama stað.  Hrossið fannst stuttu síðar rétt hjá slysstaðnum en reyndist óslasað.  Lausaganga bjúfjár er óheimil í Ölfusi.  Ekki liggur fyrir með hvaða hætti hrossið komst út af girtu svæði sem það hafði verið á.

Í vikunni voru 18 ökumenn kærðir fyrir of hraðann akstur. Flestir á vegakafla frá Vík og austur fyrir Kirkjubæjarklaustur að Höfn.  Á þessari leið urðu nokkur alvarleg umferðarslys á síðasta ári.  Þrír ökumenn voru kærðir fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna.  Einn þeirra var einnig grunaður um að hafa verið undir áfengisáhrifum.