15 Júní 2015 10:31

Einstaklega mikið álag hefur verið hjá lögreglunni á Suðurlandi í liðinni viku.  Alvarleg slys, heimilisofbeldi og líkamsárásir vógu þungt.  Í allt voru 322 verkefni skráð á þessu tímabili.  Um miðja vikuna gistu samtímis fjórir fangageymslur á Selfossi sem er með því mesta sem gerist á miðjum degi í miðri viku.

Þrívegis var lögreglan kölluð til vegna heimilisofbeldis sem í öllum tilvikum kölluðu á handtöku og vistun ofbeldismanns.  Mikil rannsóknarvinna er í tengslum við þessi mál og margir sem að þeim koma.  Þetta eru mál sem verður að bregðast við strax og óhjákvæmilegt að leggja önnur verkefni til hliðar á meðan.  Frumrannsókn verður að vinna hratt svo hægt sé að ljúka þeirri vinnu sem þarf að gera áður en ofbeldismaðurinn er látinn laus.  Þá er lögreglustjóri yfirleitt búinn að brottvísa brotamanninum af heimili og úrskurða í nálgunarbann.  Það getur hann þó ekki gert nema hafa til hliðsjónar rannsóknargögn.  Einn þeirra manna sem úrskurðaður var í nálgunarbann braut það með því að senda frá sér Sms skilaboð.  Hann mun verða ákærður fyrir það.

Rétt fyrir miðnætti síðastliðið tóku lögreglumenn á eftirlitsferð um Selfoss eftir því að hurð á vesturhlið Fjölbrautaskóla Suðurlands, Odda, hafði verið spennt upp og einhver farið inn í húsið.  Ekki var séð að neinu hafi verið stolið né meira tjón unnið en á hurðinni.

Fjórum 18 tommu álfelgum á lélegum dekkjum var stolið af lóð í Heiðmörk 2 á Selfossi á tímabilinu 26. maí til 11. júní sl.  Felgurnar eru svartar með silfurlituðum kanti.  Þeir sem veitt geta upplýsingar eru beðnir að hafa samband við lögreglu í síma 444 2010.

Í vikunni voru skráð 19 slys og umferðaróhöpp.  Á Akureyjarvegi í Rangárþingi varð alvarlegt fjórhjólaslys.  Við Vatnsvik í Þingvallaþjóðgarðinum féll veiðimaður í vatnið og missti meðvitund. Maður, honum ótengdur, sem var nærri kom honum til hjálpar.  Maðurinn var fluttur með þyrlu á Slysadeild Landspítala.  Lítillri flugvél hlekktist á á Hellisheiði við nauðlendingu.  Vélin hafði orðið bensínlaus.  Tvennt var í vélinni.  Þau sluppu með minni háttar meiðsl.

Eldur kom upp í hjólbarða vöruflutningabifreiðar á hringveginum við Þorgeirsstaði í Lóni á miðvikudagskvöld.  Slökkvilið var kallað til og réði fljótt niðurlögum eldsins.  Bifreiðin er mjög mikið skemmd eftir brunan.

Tvö minni háttar fíkniefnamál komu til kasta lögreglu.  Í öðru tilvikinu var um að ræða gest sem dvaldi á hóteli á Hvolsvelli og í hinu maður sem ók bifreið sinni í Eldhrauni, sá reyndist vera undir fíkniefnaáhrifum við aksturinn.

Í vikunni voru skráð 108 umferðarlagabrot.  Þar af voru 95 kærðir fyrir hraðakstur.  Enn hækkar talan.  Fimm voru kærðir fyrir ölvunarakstur og fjórir fyrir fíkniefnaakstur.