28 Febrúar 2017 14:34

Liðin vika var frekar róleg hjá lögreglu.  Skemmtanahald hlegarinnar gekk með ágætum og engin teljanleg útköll á öldurhús bæjarins.

Eins og þegar hefur komið fram í fjölmiðlum var lögreglu tilkynnt um skemmdir á tjaldsvæðinu í Herjólfsdal en þarna hafði ökumaður jeppabifreiðar ekið um tjaldsvæðið og olli með því athæfi töluverðum skemmdum á því.  Fljótlega bárust böndin að ungum manni sem við yfirheyrslu hjá lögreglu viðurkenndi verknaðinn.

Einn ökumaður var stöðvaður vegna gruns um ölvun við akstur bifreiðar sinnar.  Þá liggja fyrir þrjár aðrar kærur vegna brota á umferðarlögum eftir vikuna.

Lögreglan hvetur ökumenn til að skafa hrím af rúðum bifreiða sinna áður en haldið er af stað til að koma í veg fyrir slys.  Sekt fyrir að skafa ekki af rúðum bifreiða er kr. 5.000,-.