23 Ágúst 2012 12:00

Hjálmlaus, í símanum á ljóslausri vespu

Lögreglan á Suðurnesjum hafði í gær afskipti af ungri stúlku á rafmagnsvespu, sem ekki fór alveg að þeim reglum sem gilda um akstur slíkra farartækja. Vespan var ljóslaus og stúlkan talandi í síma, hjálmlaus. Rætt var við stúlkuna og henni bent á að koma hlutunum til betri vegar og fara varlega í umferðinni. Þá var forráðamönnum hennar sent bréf vegna atviksins.

Ökumaður í vímu með þýfi

Lögreglan á Suðurnesjum handtók í fyrradag ökumann sem grunaður var um akstur undir áhrifum fíkniefna. Hann heimilaði leit í bifreið sinni. Í farangurgeymslu hennar fundust fimm verkfæratöskur og tvö iðnaðarvesti. Í einni töskunni fannst meðal annars hæðarkíkir að verðmæti á þriðja hundrað þúsund. Í kjölfar þessa gerði lögregla húsleit heima hjá manninum, að fenginni heimild. Í geymslu sem hann hafði til afnota fundust ýmis tæki og tól, þar á meðal höggborvél og stingsög. Grunur leikur á að um þýfi sé að ræða.