25 Júní 2009 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og Rauði kross Íslands hafa gert með sér samkomulag um sálrænan stuðning við fólk sem komið hefur að vettvangi alvarlegra atburða þar sem kallað er eftir aðstoð lögreglunnar.

Lögreglan mun afhenda þeim sem koma að eða verða vitni að alvarlegum atburðum handhæg kort með upplýsingum um þau áhrif sem atvikið getur haft á líðan viðkomandi. Á kortinu er fólki bent á að full ástæða geti verið til að viðra reynslu sína við góðan vin eða sjálfboðaliða Hjálparsíma Rauða krossins 1717, en hann er gjaldfrjáls og opinn allan sólarhringinn. Allir sjálfboðaliðar Hjálparsímans 1717 eru sérstaklega þjálfaðir til að veita sálrænan stuðning.

Samkomulagið er gert til að aðstoða fjölda venjulegra borgara sem koma að eða verða vitni að alvarlegum atburðum. Áður en lögregla eða slökkvilið koma á vettvang hefur venjulegt fólk iðulega lagt sig fram um að sinna bráðaaðgerðum til bjargar lífi og heilsu þeirra sem orðið hafa fyrir áfalli. Meta ber framlag þeirra að verðleikum og er mikilvægt að gera sér grein fyrir að þátttaka í atburðum af þessu tagi getur haft áhrif á andlega líðan viðkomandi í bráð og lengd.

Meðfylgjandi mynd var tekin þegar Kristján Sturluson, framkvæmdastjóri Rauða kross Íslands, og Stefán Eiríksson lögreglustjóri undirrituðu samkomulagið.