5 Nóvember 2012 12:00

Víða á höfuðborgarsvæðinu eru hlaupahópar starfandi og virðist fjölga með hverju ári. Enn vantar þó upp á að meðlimir í þessum hópum noti allir endurskinsmerki þótt þeir séu á ferð í myrkri á eða við umferðargötur. Stórhætta hefur skapast af þessum sökum. Það hefur  jafnframt vakið athygli lögreglu að eðlileg aðgæsla hlaupara og virðing fyrir umferðarlögum er á stundum ansi lítil. Þeir fara t.d. óhikað yfir umferðargötur án þess að nota gangbrautir þó þær séu nærri og fara yfir á móti rauðu gangbrautarljósi.

Lögregla beinir þeim vinsamlegu tilmælum því til hlaupara sem við þessu lýsingu kannast; foreldra, afa, ömmur, frændur og frænkur, til að sýna gott fordæmi í umferð með því að nota endurskinsmerki og virða umferðarlög og reglur. Þannig stuðla þeir að eigin umferðaröryggi og annarra.