3 Nóvember 2014 12:00

Árið 2012 stóð Ríkislögreglustjórinn fyrir útboði á hönnun, framleiðslu og persónugerð nýrra ökuskírteina á evrópska efnahagssvæðinu.   Lægsta tilboð átti ungverska fyrirtækið ANY Security Printing sem rekur aðalskrifstofu sína í Búdapest, í samvinnu við Öryggismiðstöðina.     Mjög vel tókst til við hönnunina og framleiðsluna sem og persónugerð skírteinanna og dreifingu þeirra á vegum Öryggismiðstöðvarinnar.

Í vor óskaði ANY Security Printing eftir heimild Ríkislögreglustjórans til að tefla hönnun íslenska ökuskírteinisins fram í hönnunarkeppni prentiðnaðarins í Ungverjalandi, Pro Typographia 2014, en Ríkislögreglustjórinn á höfundarréttinn að skírteininu samkvæmt samningi við ANY Security Printing.   Það samþykki var góðfúslega veitt og hönnunin lögð fram í þeim flokki keppninnar sem nefnist „Security printed forms and securities“.   

Skemmst er frá því að segja að hönnunin hlaut bronsverðlaun, sem verður að teljast mikill heiður, enda á Ungverjaland ríka listahefð og ANY Security Printing sögu hátt á aðra öld í prentiðnaði.