28 Júlí 2020 11:58

Sjö samstarfsmenn á Akranesi hafa greinst með COVID-19.  Tveir þeirra komu nýlega til landsins en reyndust neikvæðir við skimun á landamærum.  Þessir einstaklingar eru nú í einangrun.  Fólk íhugi eigin smitvarnir sem aldrei fyrr en bersýnilegt er að margir virðast kærulausir að þessu leyti.

Lögreglan hér á Vesturlandi sendir út þau skilaboð til einstaklinga og fyrirtækja að herða allar sóttvarnir.  Fylgjum fyrirmælum sóttvarnalæknis sem hefur frá upphafi hamrað á að fólk virði 2ja metra regluna, þvoi sér reglulega um hendur og noti handspritt.

Tökum á þessu saman, við erum öll almannavarnir.

Lögreglan á Vesturlandi.