1 Október 2012 12:00

Hópur pilta réðust á mann um tvítugt í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum um helgina. Piltarnir börðu hann og spörkuðu í hann með þeim afleiðingum að sauma þurfti tæplega tíu spor í höfuð hans og nef. Talið var að hann hefði nefbrotnað.  Árásarmennirnir töldu sig eiga vantalað við félaga þess sem ráðist var á og komu að íbúð hins fyrrnefnda í því skyni. Maðurinn varnaði þeim inngöngu og réðust þeir þá á hann. Lögregla rannsakar málið.

Sat fastur í grjóti á hringtorgi

Talsvert var um umferðaróhöpp í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum undir og um helgina. Karlmaður á fimmtugsaldri ók bifreið sinni upp á hringtorg í Njarðvík og sat hún þar föst í grjóti. Hringja þurfti eftir dráttarbíl til að losa hana. Enn fremur rákust tveir bílar saman í Njarðvík. Slys urðu engin á fólki. Þá valt bíll á Reykjanesbraut við Voga. Tveir voru í honum og slösuðust þeir ekki alvarlega. Tvítugur karlmaður missti stjórn á bíl sínum á Bláalónsvegi þegar hann var að stilla útvarpið. Bíllinn hafnaði utan vegar og skemmdist nokkuð.Loks missti ökumaður bifhjóls í Keflavík stjórn á því með þeim afleiðingum að hjólið féll í jörðina. Ökumaðurinn marðist en slapp að öðru leyti ómeiddur.