11 Júlí 2009 12:00

Lögreglan á Selfossi fer með rannsókn á brunanum sem varð í gær í Hótel Valhöll á Þingvöllum.  Lögregluvakt hefur verið á svæðinu og verður áfram í dag og á morgun.  Skýrslur hafa verið teknar af nokkrum starfsmönnum hótelsins.  Hreinsunarstarf er hafið.  Á mánudag mun fara fram vettvangsrannsókn.  Rannsóknarlögreglumenn tæknideildar Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu voru kallaðir til aðstoðar og komu þeir á brunavettvang strax.  Þeir munu vinna við frekari vettvangsrannsókn á mánudag.  Fyrir liggur að margir aðilar hafa orðið fyrir tjóni í brunanum og þá mest húseigandi og rekstraraðili.  Starfsmenn og gestir misstu persónulega muni sína.  Búnaður sem var á vegum fyrirtækjanna Símans og Mílu, sem var á og við hótelið, skemmdist í brunanum.  Lögreglan á Selfossi vill koma á framfæri þakklæti til allra þeirra sem lögðu lið við slökkvistarfið sem og fjölmiðlafólki sem sýndi mikla tillitsemi og aðgát á brunavettvangi.  Að lokum vill lögreglan beina því til fólks sem fer til Þingvalla  í dag og á morgun að halda sig í hæfilegri fjarlægð frá brunarústunum leggi það leið sína að þeim.