26 Nóvember 2015 15:29

Brot 15 ökumanna voru mynduð á Grensásvegi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Grensásveg í suðurátt, við Hvammsgerði. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 241 ökutæki þessa akstursleið og því óku nokkrir ökumenn, eða 6%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 62 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 68.

Vöktun lögreglunnar á Grensásvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.