20 Júní 2013 12:00

Á milli klukkan 08:00 og 08:30 miðvikudaginn 12. júní síðastliðinn varð það óhapp á móts við hús nr., 1 við Skólavelli á Selfossi að stúlka á rafskutlu varð fyrir traktórsgröfu.  Stúlkan var á leið austur götuna eftir gangstéttinni þar sem grafan var.  Stúlkan fór út á götuna en í því var gröfunni bakkað með þeim afleiðingum að hún lenti á rafskutlunni.  Talið er að í umrætt sinn hafi sá sem var á gröfunni verið að vinna við lóðina að Skólavöllum 1.  Lögreglan biður þann sem var á gröfunni að hafa samband við lögregluna í síma 480 1010.

Þrettán ökumenn voru kærðir, eftir hádegi í dag, fyrir að aka of hratt á Suðurlandsvegi við Þjórsárbrú á vegarkafla þar sem hraði hafði verið tímbundið verið tekin niður úr 90 km/klst., í 50 km/klst., vegna vegaframkvæmda.  Verið var að leggja klæðningu á veginn og hann hættulegur á meðan mulningurinn er að bindast tjörunni.  Auk þess er veruleg hætta á að steinar kastist á ökutæki sem koma á móti og valdi tjóni á lakki og rúðum enda hafa einhverjir bíleigendur, sem áttu þarna leið um,  komið á lögreglustöðina á Selfossi til að tilkynna tjón á bílum sínum.  Verktakinn sem stendur að verkinu hafði sett um greinilegar og áberandi merkingar sem ekki eiga að fara framhjá neinum.  Lögreglan hvetur ökumenn til að sína tillitssemi, virða hraðatakmörk og fara gætilega þar sem verktakar eru að laga vegi.