17 Janúar 2008 12:00

 

 

 

 

Föstudaginn 18. janúar verða hraðamyndavélar í Fáskrúðsfjarðargöngum teknar í notkun. Uppsetning vélanna er liður í umferðaröryggisáætlun stjórnvalda og tilgangurinn að draga úr ökuhraða á þjóðvegum og fækka umferðarslysum. Umferðaröryggisáætlun er hluti samgönguáætlunar.

Samgönguráðuneytið, ríkislögreglustjóri, Umferðarstofa og Vegagerðin vinna að uppsetningu hraðamyndavélanna og á næstu vikum munu fleiri vélar bætast við á þjóðvegum landsins.

Um er að ræða stafræna myndatöku þar sem upplýsingar um hraðabrot eru sendar samstundis til lögreglunnar. Ekki er tekin mynd nema um brot sé að ræða. Myndatakan hefur verið heimiluð af  Persónuvernd.