2 Febrúar 2009 12:00

Hraðbanka frá Sparisjóði Suðurlands var stolið úr verslunarmiðstöðinni Sunnumörk í Hveragerði aðfaranótt sunnudags.  Þjófnaðurinn uppgötvaðist um kl. 11 í gærdag og var þegar tilkynnt um hann til lögreglu.  Við rannsókn málsins var leitað eftir aðstoð Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðisins þar á meðal tæknideildar sem rannsakaði vettvang.  Í nótt handtók Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu átta aðila sem taldir voru tengjast þjófnaðinum á hraðbankanum.  Hraðbankinn fannst í bifreið sem nokkur hinna grunuðu voru í.  Einum af þeim átta sem handteknir voru í nótt var sleppt eftir yfirheyrslu.  Lögreglumenn frá Selfossi vinna að rannsókn málsins með aðstoð lögreglumanna á höfuðborgarsvæðinu.  Ekki er hægt að upplýsa um upphæðina sem var í hraðbankanum.