26 Janúar 2021 10:13

Undanfarna daga hafa orðið nokkur umferðaróhöpp þar sem hreindýr hafa hlaupið í veg fyrir ökumenn sem eiga leið um Norðfjarðarveg við álverið í Reyðarfirði, en þar hefur talsvert stór hjörð haldið til í nokkurn tíma. Lögreglan skorar á ökumenn sem þarna eiga leið um að hafa þetta í huga og fara sérstaklega varlega.