5 Janúar 2012 12:00

Umferðaróhapp varð um kl. 05:30 í morgun á Laugarvatnsvegi við Brúará á móts við bæina Efri-Reyki og Syðri-Reyki er hross varð fyrir pallbifreið sem átti leið um veginn.  Hrossið slasaðist það mikið að ekki var hjá því komist að aflífa það.  Hrossastóð var á og við veginn og er talið að það hafi fyrr um nóttina eða kvöldið fælst vegna notkunar skotelda í sumarhúsabyggð við Syðri-Reyki og stóðið ruðst í gegnum girðingu við veginn.  Lögreglan á Selfossi biður þá sem kannast við eða geta veitt upplýsingar um skoteldanotkun á umræddu svæði í gærkvöldi eða í nótt að hafa samband í síma lögreglu 480 1010.  Um leið vill lögreglan koma því á framfæri við almenning að fylgja eftir lögum og reglum um skotelda og taka sérstakt tillit til dýra.  Þess skal getið að notkun skotelda er bönnuð við gripahús og meðferð þeirra er alltaf bönnuð frá miðnætti til kl. 09:00 að undanskilinni nýársnótt.