10 Maí 2007 12:00

Lögreglan á Hvolsvelli og Slysavarnafélagið Landsbjörg  vara við hruni úr íshelli sem er í Sólheimajökli.

Íshellirinn í Sólheimajökli breytist á hverjum degi, mikið hrun er úr honum og hættulegt að fara um hann. Greinilegar sprungur eru komnar og víða er ísinn all þunnur, að sögn lögreglunnar.

Innan við ár er síðan ferðamaður lést þegar hluti úr íshelli í Hrafntinnuskeri hrundi yfir hann.

Björgunarsveitin Víkverji setti upp skilti, á fimm tungumálum, við íshellinn í vikunni þar sem er varað er við því að vera í honum vegna hættu á hruni.

Lögreglan og Slysavarnarfélagið Landsbjörg vilja hvetja ferðamenn sem skoða íshella hvar sem er á landinu til að fara varlega og hafa fulla gát á þegar farið er um jöklasvæði.

Ljósmyndin að ofan er tekin þar sem björgunarsveitarmenn úr Víkverja komu skiltinu fyrir við íshellinn.