15 Júní 2012 12:00

Tilkynning barst lögreglunni á Suðurnesjum í gærdag þess efnis að hundur væri að drepa hænur í Keflavík. Hundurinn hafði verið í pössun en sloppið frá gæslumanni sínum. Hann þefaði uppi hænurnar, kínverskar silkihænur og íslenskar stöllur þeirra,  sem voru á baklóð húss. Hann náði að drepa þrjár þeirra, en hljóp síðan á brott. Tilkynning um málið verður send Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja. Í  öðru ótengdu máli var tilkynnt um að hundur sem gekk laus hefði bitið barn og loks tilkynnti ökumaður að hann hefði ekið á hund sem var laus á hlaupum og hljóp í veg fyrir bíl hans á Miðnesheiðarvegi.  Lögregla ítrekar enn og aftur að lausaganga hunda er bönnuð.

Fingralangir á ferð

Íbúi í Reykjanesbæ  tilkynnti til lögreglunnar á Suðurnesjum í vikunni að þremur dælum, kompási og geymi hefði verið stolið úr báti sem hann var að gera upp. Þá tilkynnti karlmaður á þrítugsaldri að stolið hefði verið af heimili sínu United Media spilara með 640 gb disk. Loks tilkynnti kona stuld á reiðhjóli sonar síns. Um var að ræða fjallahjól af gerðinni Trekk og stóð það læst við Grunnskóla Grindavíkur þegar því var stolið.