24 Nóvember 2012 12:00

Síðdegis í gær framkvæmdi lögreglan á Vestfjörðum húsleit á heimili tveggja einstaklinga á Ísafirði.  Grunur hafði vaknað um að í íbúðinni væri meðhöndluð fíkniefni.

Við húsleit fundust kannabisfræ, áhöld sem virðast hafa verið notuð til kannabisneyslu og ætluð ólögleg hormónalyf sem talin eru notuð í tengslum við líkamsrækt. 

Einstaklingarnir tveir sem búa í umræddri íbúð voru handteknir og vistaðir í fangageymslu meðan rannsókn stóð yfir.  Þeim var sleppt eftir yfirheyrslur í gærkveldi.  Aðilar þessir hafa báðir komið áður við sögu lögreglu vegna fíkniefnabrota.  Málið telst upplýst.

Lögreglan vill hvetja alla þá sem telja sig búa yfir upplýsingum um fíkniefnameðhöndlun að hafa samband í síma 450 3730 eða upplýsingasíma lögreglu og tollgæslu, sem er 800 5005.  Fullri nafnleynd er heitið hverjum þeim sem gefur slíkar upplýsingar.