3 Febrúar 2012 12:00

Miðvikudaginn 1. febrúar sl. fann lögreglan á Vestfjörðum, við húsleit í heimahúsi, ætlað ólöglega tilbúið áfengi og áhöld til gerðar slíks vökva.  Einnig fundust við húsleitina áhöld til fíkniefnaneyslu.  Engin fíkniefni fundust þó við leitina.  Lagt var hald á tæplega 60 lítra af hinu meinta ólöglega áfengi sem talið er hafa verið framleitt í umræddu húsi.  Lögreglu grunar að áfengið hafi átt að seljast á norðanverðum Vestfjörðum.

Tveir ungir menn, íbúar hússins, voru handteknir og yfirheyrðir. Þeir hafa viðurkennt að hafa framleitt áfengið. Þeim hefur nú verið sleppt, enda telst rannsókn málsins á lokastigi.

Lögreglan hvetur alla þá sem búa yfir upplýsingum um meðhöndlun fíkniefna eða ólöglegs áfengis að gera lögreglu viðvart, annað hvort í upplýsingasíma lögreglunnar á Vestfjörðum, 450 3731, eða í upplýsingasíma lögreglu, 800 5005.  Einnig er hægt að koma slíkum upplýsingum á framfæri í tölvupósti, á netfangið info@rls.is . Fullrar nafnleyndar er heitið.