15 Desember 2007 12:00

Héraðsdómur Suðurlands úrskurðaði nú síðdegis mann þann sem lögreglan í Vestmannaeyjum heftur haft í haldi í gæsluvarðhald til mánudags 17. desember.

Maðurinn hefur verið í haldi lögreglunnar í Vestmannaeyjum síðan í gær vegna rannsóknar á brunanum í Fiskiðjunni aðfaranótt s.l. föstudags.  Umræddur aðili, sem er á þrítugsaldri hefur sagst hafa verið í húsinu skömmu áður en eldur varð þar laus, en hefur neitað að hafa kveikt þar eld.  Rannsókn hefur leitt í ljós að umræddur aðili yfirgefur húsið um svipað leyti og tilkynnt er um brunann.

Rannsókn málsins er fram haldið af fullum krafti og mun rannsóknarlögreglumaður frá rannsóknardeild lögreglunnar á Selfossi koma til Eyja í kvöld til aðstoðar.