7 Ágúst 2012 12:00

Í tengslum við rannsókn á bruna í Arnari ÁR 55 í Þorlákshöfn í gærmorgun var leitað til Tæknideildar LRH um tæknirannsókn á brunastað.  Niðurstaða þeirrar rannsóknar leiddi í ljós að um íkveikju væri að ræða.  Eldurinn kom upp í svampdýnu sem staðsett var í vinnslurými bátsins.   Rannsóknardeild lögreglunnar á Selfossi fer með rannsókn málsins.  Allir þeir sem orðið hafa varir mannaferða á bryggjum hafnarinnar, fótgangandi á bílum eða á annan máta, eða annars staðar í Þorlákshöfn á tímabilinu frá kl. 04:00 til 07:30 í gærmorgun eru beðnir að hafa samband við lögreglu í síma 480 1010.