13 Desember 2014 18:17

Almannavarnadeildin vill vekja athygli á illviðrisspá frá Veðurstofunni í nótt og á morgun, sunnudag.
Veðurspáin er svohljóðandi:  Suðlæg eða breytileg átt, yfirleitt á bilinu 5-13 m/s. Snjókoma með köflum í flestum landshlutum. Gengur í norðaustan 18-23 með snjókomu í kvöld á Vestfjörðum og annesjum nyrst. Hvessir um allt land í nótt. Norðan og norðvestan 15-23 á morgun, en 23-32 um landið A-vert. Talsverð snjókoma og skafrenningur á N- og A-landi. Stöku él S- og V-lands, en talsverður skafrenningur einnig á þeim slóðum. Dregur heldur úr vindi vestantil seint á morgun. Frost 0 til 8 stig, en frostlaust um tíma syðst síðdegis í dag.

Í nótt verður versta veðrið á Vestfjörðum (18-23 m/s) sem síðar færist suður með Vesturlandi og austur með Norðurlandi. Snemma í fyrramálið hvessir talsvert á austurhelmingi landsins umfram það sem verið hefur um nóttina og má búast við að meðalvindur verði á bilinu 23-32 m/s (10-11 vindstig) og að hviður geti farið yfir 50 m/s. Þar sem vindáttin er af norðri og norðvestri má reikna með að vindhviðurnar verði hvað sterkastar á Suðausturlandi og sunnanverðum Austfjörðum. Þessu fylgir einnig talsverð snjókoma, einkum þó Norðaustan- og Austanlands.
Ekki er gert ráð fyrir að veðrið fari að ganga miður á austurhelmingi landsins fyrr en undir morgun á mánudag.

Vert er að hafa í huga að í svona veðurhæð með ofankomu er skyggni nánast ekkert og því útilokað að ferðast og eins má búast við að vegir verði ófærir á mjög skömmum tíma.